Lífsvagninn

Þarfir Lífsvagninn GSM Algengar spurningar Tenglar

 

Lífsvagninn er myndlíking sem birtist í sjálfsstjórnarkenningu Dr. Williams Glasser.  Lífsvagninn hjálpar okkur að skilja eigin hegðun.

Hjólinpage 22

Framhjólin tákna það sem við getum stjórnað, þ.e. annars vegar hugsun og hins vegar gerðum.  Alveg eins og á bílnum eru það framhjólin sem við getum gripið til þegar ákveða þarf stefnuna sem við ætlum að taka.  Hvert við ákveðum að fara hefur síðan áhrif á afturhjólin, því þau hafa ekkert val um annað en að elta.  Aftuhjólin í lífsvagninum tákna annars vegar tilfinningar og hins vegar líkamleg viðbrögð.  Þau elta ekki eingöngu, heldur geta þau einnig komið þeim skilaboðum til okkar að eitthvað sé að og þörf fyrir viðbrögð hugsunar og gerða.  Hugsanir okkar og gerðir miða alltaf að því að koma á jafnvægi á ný.

Vélin

Það sem knýr okkur áfram eru grunnþarfirnar okkar fimm.  Vegferð okkar snýst um það að sinna þörfum okkar og á meðan þeim er sinnt gengur vélin eins og smurð.  En um leið og þarfirnar eru sveltar, minnkar aflið í vélinni.  Þá er kominn tími fyrir hugsun og framkvæmd að láta til skarar skríða.

Baksýnisspegillinn

Það getur vissulega verið gott að horfa til baka og skoða það sem maður hefur gert í fortíðinni.  Því verður hins vegar ekki breytt því lífsvagninn hefur engan bakkgír.  Það sem við sjáum í baksýnisspeglinum getur eingöngu hjálpað okkur að bregðast við svipuðum ástæðum síðar.

Hver er við stýrið?

Langanir okkar eru það sem ákveða hvaða leið við förum.  Flest látum við stjórnast af eigin löngunum, oftast allavega.  Oft er þó fólk í aftursætinu sem reynir að hafa áhrif á okkur og segja okkur til.  Það er gott og blessað en þó ráðum við sjálf hvaða ráð við þiggjum og hver ekki.  Þegar einhver annar sest undir stýrið í okkar lífsvagni er hins vegar voðinn vís.  Þá fáum við ekki neinu ráðið lengur og hljótum því alltaf að verða ófullnægð.

Smelltu hér til að skoða Powerpoint sýningu um lífsvagninn

© Örn Arnarson