![]()
|
||||
| G | S | M | ||
| Í uppbyggingu er notast við skammstöfunina hér
að ofan til að marka leiðina sem við förum til að leiðrétta og vinna úr
neikvæðri hegðun. Eins og í svo mörgu sem tengist uppbyggingu
sjálfsaga spyrjum við spurninga sem leiða okkur að niðurstöðunni. G - Stendur fyrir grunnþarfirnar okkar. Við veltum fyrir okkur af hverju hegðun á sér stað, þ.e. hvaða þörf liggur að baki. Öll hegðun hefur þann tilgang að svala einhverri af þörfum okkar. Með því að finna hvaða þörf við erum að fullnægja með neikvæðri hegðun, getum við fundið hvernig hægt er að mæta þeirri þörf án þess að brjóta á öðrum og koma okkur í vandræði. Við reynum að finna jákvæða leið til að svala þörfinni. Dæmi um spurningar sem við spyrjum eru:
S - Stendur fyrir sannfæringu okkar. Við veltum fyrir okkur hvað okkur finnst mikilvægt og skoðum lífsgildi fjölskyldunnar, bekkjarins eða skólans. Með því reynum við að líta á jákvæðan hátt á hvernig við erum sammála um að hegðun ætti að vera og berum raunverulega hegðun saman við þá sannfæringu. Dæmi um spurningar sem við spyrjum eru:
M - Stendur fyrir manneskjuna sem við viljum vera. Allir hafa í hugskoti sínu mynd af þeirri manneskju sem þeir vilja vera og til þess að læra að breyta rétt þurfum við að bera raunverulega hegðun okkar við þessa mynd. Dæmi um spurningar sem við spyrjum eru:
Nánari upplýsingar um þessi þrjú atriði finnur þú með því að smella á stafina efst á þessari síðu.
|
||||
© Örn Arnarson