|
|
VelkominÁ þessari síðu getur þú fræðst um Uppbyggingu - uppeldi til ábyrgðar, en um þessar mundir er verið að innleiða hana í Heiðarskóla. Meginmarkmiðið með þessum litla vef er að kynna Uppbyggingarstefnuna í grundvallaratriðum og hvernig hún birtist í Heiðarskóla, til þess að foreldrar og forráðamenn öðlist betri skilning á því sem verið er að vinna með börnum þeirra í skólanum. Annað markmið okkar er að þessi vefur sé aðgengilegur og einfaldur til þess að sem flestir geti lesið hann og fræðst um málefnið. Njótið heil! Stýrihópur um innleiðingu Uppbyggingarstefnunnar í Heiðarskóla. |
© Örn Arnarson